Skilmálar

Almennt

Efnið á vefnum, hvort sem um er að ræða texta, myndir eða annað efni, er í eigu AutoCenter og verndað af höfundarréttarlögum. Óheimilt er að nota efnið í heild sinni eða að hluta í atvinnuskyni eða til tekjuöflunar en þó er heimilt að vísa í efni á vefnum. AutoCenter áskilur sér rétt til að banna tilvísanir sem gerðar eru í atvinnuskyni eða tilvísanir sem til þess eru fallnar að kasta rýrð á AutoCenter eða þau vörumerki sem fyrirtækið hefur umboð fyrir. Athygli er vakin á því að öll vörumerki á þessum vef eru skráð vörumerki og er algerlega óheimilt að nota þau, dreifa eða afrita nema með skriflegu leyfi eiganda vörumerkisins.

Efni vefsvæðisins

Upplýsingarnar á vefsíðunni eru ekki tæmandi og koma aldrei í stað þeirra upplýsinga sem starfsmenn AutoCenter veita. AutoCenter leggur áherslu á að upplýsingar á vefsvæðinu séu réttar en afsalar sér ábyrgð á því ef upplýsingar reynast rangar.

Verðskrá

Verð þjónustu á vefnum er einungis til viðmiðunar. Upplýsingar um verð og lýsing vöru fela ekki í sér bindandi tilboð af hálfu AutoCenter. Slíkar upplýsingar kunna að vera úreltar og AutoCenter beinir því til notanda að sannreyna upplýsingarnar sem fram koma á vefsvæðinu á hverjum tíma hafi hann í hyggju að nýta þær með einhverjum hætti. Verð er ávallt með virðisaukaskatti og getur breyst án fyrirvara og getur verið háð gengi á hverjum tíma.

Vafrakökur

Vefsíðan okkar gæti notað „vafrakökur“ til að auka upplifun notenda. Vefskoðari notandans setur fótspor á harða disknum sínum í skráningarskyni og stundum til að rekja upplýsingar um þau. Notandi getur valið að stilla vafra sinn til að hafna fótsporum eða láta þig vita þegar vafrakökur eru sendar. Ef þeir gera það skaltu hafa í huga að sumir hlutar vefsins virka ef til vill ekki rétt.

Persónuvernd

AutoCenter safnar persónuupplýsingum tengdum tímapöntunum og öðrum formum á vefsvæðinu. AutoCenter heitir kaupanda fullum trúnaði og mun ekki undir neinum kringumstæðum selja eða láta þriðja aðila í té umræddar upplýsingar.

Ópersónugreinanlegar upplýsingar

Við gætum safnað persónulegum upplýsingum um notendur hvenær sem þeir hafa samskipti við vefinn okkar. Ópersónugreinanlegar upplýsingar geta verið nafn vafrans, gerð tölvunnar og tæknilegar upplýsingar um notendur tengingar við vefinn okkar, svo sem stýrikerfi og internetþjónustuaðilar sem notaðar eru og aðrar svipaðar upplýsingar.

Tenging við önnur vefsvæði

AutoCenter ber ekki ábyrgð á þeim vefsvæðum sem unnt er að tengjast í gegnum vefsvæði AutoCenter og eru með öllu ótengdir AutoCenter eða þeim birgjum sem AutoCenter er umboðsaðili fyrir. Jafnframt ber AutoCenter ekki ábyrgð á þeim vefsvæðum öðrum sem veita aðang að vefsvæði AutoCenter.

Takmörkun ábyrgðar

AutoCenter tekur ekki ábyrgð á fjárhagslegu eða ófjárhagslegu tjóni af neinu tagi sem notandi eða aðrir kunna að verða fyrir vegna notkunar á vefsvæðinu. AutoCenter áskilur sér rétt til að endurskoða þessa skilmála hvenær sem er.

Lögsaga og dómstólar

Notkunarskilmálarnir eru háðir íslenskum lögum og íslenskir dómstólar hafa einir lögsögu í ágreiningsmálum sem varða notkunarskilmálana og vefsvæðið.

Rísi réttarágreiningur í tengslum við skilmála þessa skal bera hann undir héraðsdóm Reykjaness.